| Læknar vilja friðhelgi á netinu |
| Fimmtudagur, 05. Mars 2009 08:46 |
|
„Neytendur og sjúklinga þyrstir í hjálplegar upplýsingar um lækna en umsagnir á netinu virka þveröfugt,” segir taugaskurðlæknirinn Dr. Jeffrey Segal, sem stofnað hefur fyrirtækið Medical Justice til aðstoðar læknum sem vilja berjast gegn slíkum umsögnum. Segir hann umsagnir á netinu oft minna mest á frásagnir götublaða, sem skeyti engu um sannleiksgildi eða áhrif umfjöllunarinnar. Segal ráðleggur öllum læknum að fá sjúkling sína til að undirrita slíka yfirlýsingu en segist þó ekki vita til þess að sjúklingum hafi verið vísað frá hjá læknum sem þeir hafi leitað til áður, þó þeir hafi neitað að verða við slíku. Öðru máli gildi um nýja sjúklinga. Nokkrum stórum vefsíðum, sem sérstaklega fjalla um framkomu og árangur einstakra lækna, er haldið út í Bandaríkjunum og er misjafnt eftir síðum hvort þess er krafist að umsagnir birtist undir réttu nafni eða ekki. John Swapceinski, einn af stofnendum síðunnar RateMDs.com, segir nokkuð um að læknar biðji um að umsagnir um þá séu fjarlægðir á grundvelli yfirlýsingar sjúklinga. Forsvarsmenn síðunnar verði hins vegar ekki við slíkum beiðnum enda sé það stjórnarskrárbundinn réttur fólks að tjá sig um reynslu sína. |
