facebook

Lagabreyting gæti ógnað lífi fólks
Sunnudagur, 05. Febrúar 2012 00:00
hjartathraeding5Talsmenn fyrirtækja, sem flytja inn lækningavörur hafa þungar áhyggjur af lagafrumvarpi, sem kynni að tefja afgreiðslu hraðsendinga til landsins. Líf sjúklinga geti legið við þegar beðið er eftir varahlutum í tæki og hlutum, sem notaðir eru í hjarðaaðgerðir.

Forráðamenn hraðsendingarfyrirtækja telja að flestir hraðflutninga tefjist um einn til tvo daga, verði frumvarp um breytingu á tollalögum samþykkt. Landspítalinn reiðir sig á lækningatæki og varahluti einkum frá tveimur fyrirtækjum, Fastus og Medor. Í báðum fyrirtækjum hafa menn þungar áhyggjur af frumvarpinu.

Sigtryggur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Medors segir að breytingin myndi hafa veruleg áhrif á starfsemi fyrirtækisins og líka á viðskiptavini þess.

„Við reiðum okkur mjög mikið á þessar hraðsendingar, sér í lagi á vörum eins og varahlutum fyrir ýmisskonar lækningatæki og rannsóknartæki sem eru inni á heilbrigðisstofnunum hér á landi.“

Sigtryggur segir að frumvarpið kynni að hafa veruleg áhrif á rekstraröryggi á Landspítalanum. Medor sér spítalanum fyrir varahlutum í rannsóknartæki fyrir hjartasjúklingar.

Hjá Fastus taka menn undir þessar áhyggjur. Arnar Bjarnason, markaðsstjóri Fastusar bendir á að þar flytji menn til dæmis inn belgi sem notaðir séu í hjartaaðgerðum. „Ef við náum að senda út pöntun fyrir eitt eða tvö á daginn, þá er varan kominn inn á gólf til okkar tíu daginn eftir. Jafnvel hægt að nota hana í aðgerð seinna um daginn. Við viljum náttúrulega helst ekki að sjúklingur þurfi að bíða í einn til tvo daga, eftir að varan komi til landsins.“

Arnar ímyndar sér að sú töf geti jafnvel í ákveðnum tilfellum ógnað lífi fólks.

Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að ekki hafi nægilegt samráð verið haft við hraðsendingarfyrirtækin. Helgi hefur óskað eftir því að tollstjóri fundi með þeim á næstu dögum.

www.ruv.is 05.02.2012

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066