| Lagt til að konur yfir 65 ára aldri taki aspirín |
| Þriðjudagur, 20. Febrúar 2007 00:00 |
Nær allar konur í Bandaríkjunum eiga það á hættu að verða hjartveikar og læknar ættu að íhuga það að láta konur eldri en 65 ára taka aspirín á hverjum degi, að mati samtaka hjartaverndar í Bandaríkjunum, American Heart Association. Um þriðja hver bandarísk kona er hjartveik.Hjartavernd Bandaríkjanna hefur gefið út nýjar viðmiðunarreglur fyrir konur til að koma í veg fyrir hjartveiki og hjartasjúkdóma. Konum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst klukkustund á dag og þá oft í viku, borða hollan mat og minnka við sig í fitu. Ferskir ávextir og grænmeti eiga að draga úr líkum á hjartveiki auk þess að reykja ekki, sem hingað til hefur verið ljóst.
Frétt af mbl.is
|

Nær allar konur í Bandaríkjunum eiga það á hættu að verða hjartveikar og læknar ættu að íhuga það að láta konur eldri en 65 ára taka aspirín á hverjum degi, að mati samtaka hjartaverndar í Bandaríkjunum, American Heart Association. Um þriðja hver bandarísk kona er hjartveik.