| Landlækni ekki kunnugt um ótimabær dauðsföll |
| Þriðjudagur, 01. Júlí 2008 20:04 |
|
190 manns eru á biðlista eftir hjartaþræðingu og kransæðavíkkun og á fimmta tug manna bíða eftir opinni hjartaskurðaðgerð. Í fréttum Stöðvar 2 í gær sagði framkvæmdastjóri Hjartaheilla að líkur væru á að 10% þeirra sem væru á biðlista eftir þræðingu eða opinni hjartaaðgerð lifðu ekki biðtímann af. Sigurður Guðmundsson landlæknir segir að embættinu sé hvorki kunnugt um ótímabær dauðsföll sjúklinga á biðlista eftir slíkum aðgerðum hér á landi. Tölurnar sem Hjartaheill vitnaði til séu byggðar á nokkurra ára gömlum breskum rannsóknum sem ekki sé hægt að heimfæra að fullu um aðstæður hér á landi.
Biðlistinn á Landspítalanum eftir hjartaþræðingum hafi styst um 20% síðustu fimm mánuði og þeim sem hafi beðið lengur en þrjá mánuði eftir þræðingu hafi fækkað um helming. Heilbrigðisráðherra segir markvisst unnið að því að stytta biðlistana. |
