| Landlæknisembættið 250 ára |
| Miðvikudagur, 17. Mars 2010 10:31 |
|
Multithumb found errors on this page: There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/lisalib/getfile.aspx?itemid=15 Heilbrigðisráðherra, Álfheiður Ingadóttir, setur samkomuna með ávarpi og því næst flytur Margrét Björnsdóttir, settur forstjóri Lýðheilsustöðvar, afmæliskveðju. Meginuppistaða hátíðardagskrárinnar eru fimm erindi fræðimanna um ýmsa þætti í sögu embættisins frá öndverðu þar sem litið verður yfir þróunina allt til þessa dags. Að erindunum loknum flytur Ólafur Ólafsson, fyrrum landlæknir, afmæliskveðju og loks ávarpar Geir Gunnlaugsson landlæknir hátíðargesti með lokaorðum. Fundarstjórar verða Örn Bjarnason læknir og Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi landlæknir. Að hátíðardagskránni lokinni býður Landlæknisembættið til klukkustundar samveru með viðstöddum þar sem boðið verður upp á veitingar. Hátíðardagskráin er öllum opin meðan húsrúm leyfir.
Sjá meira um 250 ára afmæli |
