| Landspítala blæðir |
| Mánudagur, 21. Apríl 2008 09:55 |
|
Sem utanaðkomandi áhugamanni um starfsemi LSH þá lýst mér ekkert á blikuna. Í fyrsta lagi þá virðist staðan vera þannig að stjórnarnefndin hans Vilhjálms Egilsson sem sem beitti sér fyrir flötum sparnaði er búinn að setja nánast allt á annan endann á spítalanum. Núna eftir áramótin hefur hvert málið rekið annað þar sem starfsmenn spítalans hafa farið í opinbert rifrildi í fjölmiðlum. Ég verð að segja að ekkert af þeim málum sem hafa ratað á borð fjölmiðla hafa borið vott um mikla stjórnkænsku eða samstarfsvilja milli deilenda. Alla vega hefur umræðan á stundum verið í stríðsfyrirsagnastíl og ásakanir á báða bóga. Síðasta málið sem hefur verið áberandi þ.e. varðandi skurðhjúkrunarfræðinga stefnir starfsemi sjúkrahússins í voða og ég skil vel ólgu starfsmanna.
Ég geri fastlega ráð fyrir því að það sé mikill fjöldi mála sem að ekki rata inn á borð fjölmiðla en verið sé að reyna að sætta inna dyra spítalans, reyndar hef ég fyrir þessu vissu. Ég geri ráð fyrir því að "Vilhjálmsnefndin" sé að vinna það fyrir hönd Heilbrigðisráðherra og ráðning nýs forstjóra í haust verður sjálfsagt partur af þeirri breyttu og vonandi bættu stjórnunarstefnu. Mínar áhyggjur eru hinsvegar þær að á meðan engin veit hvað verður er verið að djöflast í núverandi starfsmönnum með sparnartillögur og breytingar á vinnutilhögun.
Af hverju ráðast menn ekki fyrst í breytingar á stjórnskipulagi og leggja á borð fyrir almenning og starfsmenn hvernig á að hafa þessa hluti í framtíðinni og þá er lag að kynna breytingar á vinnulagi og þessháttar.
Mér finnst ljóst vera að ef fram fer sem horfir og óvissa starfsmanna vex þá verði stór hluti starfsmanna hættur og farinn og þeir sem eftir verða koma til með að standa í valdabrölti fram á haustið. |
