facebook

Landspítalinn lýstur upp í rauðum lit
Mánudagur, 16. Febrúar 2009 15:44

lhs_raudur__feb.jpgLandspítali Hringbraut hefur verið lýstur upp í rauðum lit.  Það tengist átaki sem verkefnahópurinn GoRed á Íslandi stendur fyrir næstu vikurnar.  GoRed fyrir konur á Íslandi er alþjóðlegt forvarnarverkefni vegna hjarta- og æðasjúkdóma á vegum World Heart Federation. 

Stjórn átaksins og framkvæmd er í samvinnu við Hjartavernd. Átakið hefst sunnudaginn 22. febrúar  á konudaginn en þá verður kynningarfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Hjarta-og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annars staðar í heiminum.  GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum, að því er fram kemur á vef Landspítalans.

www.mbl.is 16.02.2009

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066