| Langur vinnutími hækkar dánartíðni |
| Þriðjudagur, 25. Janúar 2011 11:13 |
|
Rannsóknin sem birt er í tímaritinu Nursing Research samanstendur af samanburði á vinnu og vaktaplani 633 hjúkrunarfræðinga sem valdir voru af handahófi á 71 bráðasjúkrahúsi í Bandaríkjunum og svo hinsvegar dánartíðni sjúklinga á viðkomandi vinnustað. Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að meiri líkur væru á að sjúklingar með lungnasýkingar létust á þeim sjúkrahúsum þar sem hjúkrunarfræðingar unnu langar vaktir. Í ljós kom sterk fylgni við hærri dánartíðni þeirra sem létust af hjartaáföllum ef hjúkrunarfræðingar höfðu unnið marga daga í röð án þess að taka sér hvíldardag. Samhengi var á milli dánartíðni sjúklinga með æðagúlp og fjölda frídaga hjúkrunarfræðinga. Einnig kom í ljós hærri dánartíðni hjá sjúklingum með hjartabilun ef hjúkrunarfræðingar mættu veikir til vinnu. Höfundar rannsóknarinnar benda á að góð hjúkrun byggi á því að hjúkrunarfræðingar fái næga hvíld og góðan svefn og benda jafnframt á að langar vaktir hafi áhrif á gæði hjúkrunar og auki hættuna á mistökum. Ástæðu þess að hjúkrunarfræðingar í Bandaríkjunum vinna 12 tíma vaktir má rekja til skorts á hjúkrunarfræðingum á árunum kring um 1980. Margir hjúkrunarfræðingar kjósi hinsvegar að vinna langar vaktir og fá löng frí á milli. Langar vaktir og breytilegur vinnutími leiði hinsvegar oft til svefnvandamála. Höfundar rannsóknarinnar benda jafnframt á að samhengi sé á milli lengri vinnutíma hjúkrunarfræðinga og styttri vinnutíma hjá læknum þar í landi. Fréttina í heild sinni má sjá á eftirfarandi slóð Rannsóknina í heild sinni má hinsvegar sjá á eftirfylgjandi slóð Heimild |
