facebook

„Látinn“ maður vaknaði til lífsins
Fimmtudagur, 12. Júní 2008 09:55

big-skurarborjpg.jpg45 ára franskur karlmaður sem hafði verið úrskurðaður látinn vaknaði á skurðarborðinu á háskólasjúkrahúsinu í París, rétt áður en læknar ætluðu að taka úr honum nokkur líffæri til líffæragjafar.


Maðurinn hafði fengið hjartaáfall og var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna á sjúkrahúsið. Þar sem hann var á lista yfir líffæragjafa hringdu læknarnir á skurðlækna sem voru farnir að munda hnífanna og skera í manninn þegar hann loksins fór að anda og veita svörun við sársaukaprófun.


Samkvæmt skýrslu sem siðanefnd spítalans gerði eftir atvikið var endurlífgun reynd í klukkustund áður en kallað var á skurðlæknanna og því ekki hægt að varpa sökinni á læknanna. Maðurinn er nú við ágæta heilsu og er farinn að geta gengið og talað.

www.visir.is 12.06.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066