| Láttu í þér heyra sem notandi heilbrigðisþjónustunar |
| Miðvikudagur, 29. Nóvember 2006 00:00 |
|
Lagðar voru fram ýmsar ábendingar til umbóta á öryggi sjúklinga. Því hefur verið haldið fram að þessi skýrsla sé í hópi þeirra sem mest áhrif hafa haft í heilbrigðisþjónustu undanfarna tvo áratugi. Það er sameiginleg ábyrgð allra að efla öryggi í heilbrigðisþjónustunni, þ.e. heilbrigðisstofnana, heilbrigðisstarfsfólks og notenda þjónustunnar. Ýmsar stofnanir erlendis hafa hvatt til þess að notendur taki virkan þátt í sinni meðferð þar sem rannsóknir sýna að þeim farnast betur en öðrum. Að auka eigin öryggi í heilbrigðisþjónustu
Landlæknisembættið hvetur alla til að taka þátt í ákvörðunum um eigin meðferð. Þú ert miðdepillinn í þinni eigin heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga átt þú rétt á að leita álits annars heilbrigðisstarfsmanns um meðferð ástand og batahorfur. Einnig getur verið gott að ræða við aðra með sama heilbrigðisvanda. Að lokum er rétt að benda á að sjúklingur ber einnig ábyrgð á eigin heilsu eftir því sem það er á hans færi og ástand hans leyfir.
Birtist í Mbl. 29. nóvember 2006
|
