| Legurýmum á hjarta- og lyflækningadeildum fækkað um 20 |
| Miðvikudagur, 02. Desember 2009 00:00 |
|
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, segir að verði fjöldi sjúklinga sem þarf að leggja inn umfram þau legurými sem á að halda eftir þurfi aðrar deildir að bæta þeim sjúklingum við sig. „Þeir sem þurfa að leggjast inn þurfa þá bara að fara yfir á aðrar deildar," segir Kristín í samtali við Vísi. Kristín segir að í þeim skýringapósti sem var sendur hafi jafnframt verið lögð áhersla á að öllu ferli í meðferð sjúklinga yrði hraðað. „Það hefur að okkar mati verið mjög mikil aukning á því að sjúklingar séu látnir fara eins fljótt og hægt er en þarna er verið að leggja ennþá meiri áherslu á það," segir Kristín, sem telur að útlitið framundan í heilbrigðismálum sé ekki bjart. www.visir.is 02.12.2009 |
