| Leikmenn gangist undir hjartaskoðun |
| Sunnudagur, 03. Febrúar 2008 14:40 |
|
Hinar hertu reglur taka mið af kröfum Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, sem vill uppræta með öllu svokallaðan skyndidauða knattspyrnumanna sem hefur aukist á síðustu árum. Í flestum tilvikum hefur orsök andlátsins verið leyndur hjartagalli eða hjartavöðvasjúkdómur sem hefði líklega verið hægt að koma auga á með tiltölulega einfaldri hjartaskoðun. Áætlað er að nýjar reglur UEFA taki gildi frá og með næsta tímabili en KSÍ hefur verið veittur frestur til 2009 til að finna leiðir til að lækka kostnaðinn sem þær hafa í för með sér fyrir félögin. Fréttablaðið 03.02.2008 |
