| Lífrænt betra fyrir hjartað? |
| Föstudagur, 13. Júlí 2007 09:53 |
|
Talið er að ástæða þess að svo mikið finnst af flavonoids í lífrænt ræktuðum tómötum, liggi í því að í jarðvegi þar sem lífræn ræktun er stunduð, er minna af köfnunarefni þar sem þar ekki er notaður tilbúinn áburður. Virðist framleiðsla andoxunarefnanna virðist fara af stað sem ek. varnarviðbrögð við skorti á köfnunarefni. En flavonoids hafa verið talin draga úr hættu á vissum gerðum krabbameins og elliglapa.
Vert er að taka fram að bent hefur verið á að engar beinar sannanir séu enn fyrir því að lífrænt ræktaður matur sé heilnæmari en annar, til þess þurfi ítarlegri rannsóknir. Vissulega hafi verið sýnt fram á að lífrænt ræktaður matur hafi ekki nákvæmlega sömu samsetningu næringarefna, en þar með sé hann ekki endilega betri. Í því samhengi er bent á að nýleg rannsókn sýni fram á að lífræn mjólk innihaldi meira af ómega-3-fitusýrum en önnur mjólk, en að þær fitusýrur virðist ekki hafa sömu hollustueiginleika og ómega-3-fitusýrur sem eingöngu finnast í feitum fiski. |
