| „Líkamsklukkurofinn“ fundinn |
| Fimmtudagur, 13. Desember 2007 11:45 |
|
Þeir segja að þrátt fyrir að um flókið genafræðilegt ferli sé að ræða þá sé það í raun aðeins ein amínósýra, sem er grunneining próteins, sem stjórnar ferlinu. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins. Vonast er til þess að niðurstöðurnar leiði til þess að m.a. verði hægt að búa til betri svefnlyf . Háskólinn í Kaliforníu hefur birt rannsókn sína í vísindaritinu Nature. Paolo Sassone-Corsi, sem fór fyrir rannsókninni, segir að þar sem um svo nákvæma rofavirkni sé að ræða þá virðist sem svo að hún hafi áhrif á efnasambönd sem aftur geti stjórnað svefnvenjum fólks.
„Það er ávallt ótrúlegt að fylgjast með því hversu nákvæm stjórn sameinda er í líffræði,“ segir hann. Líkamsklukkan mannsins er afar næm og getur séð fyrir ýmsar breytingar sem verða í umhverfinu. Hún sér um að stjórna mikið af þeirri starfssemi sem á sér stað í líkama fólks, t.d. svefnmynstri þess, efnaskiptum og hegðun. Talið er að klukkan stýri um 15% af öllum genum líkamans.
Það getur því haft mikil áhrif á heilsu manna verði klukkan fyrir truflun. Svefnleysi, þunglyndi, hjartasjúkdómar, krabbamein og taugahrörnun er á meðal þess sem er sagt tengjast þessari truflun. |
