| Líkamsrækt og lýsi öflug vopn gegn aukakílóum |
| Miðvikudagur, 23. Maí 2007 20:22 |
|
Magn af góðu kólesteróli (HDL) jókst hjá þeim þátttakendum í rannsókninni er tóku einungis lýsi eða stunduðu líkamsrækt og tóku einnig lýsi, og svonefnd þríglyseríð (óheilsusamleg blóðfita) minnkuðu einnig. Um leið minnkaði líkamsfita þessara þátttakenda. Það voru vísindamenn við University of South Australia í Adelaide sem gerðu rannsóknina, en niðurstöður hennar birtast í American Journal of Clinical Nutrition. |
