| Litaglaða fæðið er hollara |
| Mánudagur, 19. Nóvember 2007 07:15 |
|
*Gult: Sætar kartöflur, gulrætur, grasker, mangó, maís og melóna innihalda karótín, sem draga úr hættu á krabbameini. * Grænt: Grænmeti á borð við spínat og spergilkál er fullt af næringarefnum, sem líkleg eru til að viðhalda sjóninni. * Blátt og purpurarautt: Bláber og brómber innihalda næringarefni, sem gætu hindrað æxlismyndun og dregið úr vexti þeirra. * Rautt: Tómatar og vatnsmelóna eru uppfull af næringarefnum, sem vernda gegn krabbameinum og hjartasjúkdómum. * Hvítt: Blómkál býður upp á svipaða vörn gegn krabbameini og spergilkál auk þess sem kartöflur innihalda mikið af C-vítamíni. Vísbendingar eru líka um að brennisteinsefnasambönd í hvítlauk og lauk geti varið fólk gegn maga- og ristilkrabbameinum. Annar hvítur matur, t.d. kjúklingur, sjávarmeti, fituskertur ostur, egg og tófú, veitir svo mikilvægum prótínum í mataræðið. |
