| Lítið svigrúm til sparnaðar á LSH |
| Mánudagur, 16. Febrúar 2009 11:17 |
|
Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, sér ekki að svo mikilli hagræðingu verði náð án þess að skerða þjónustu. Birna segir vitað að laun þeirra sem mestar hafa tekjurnar verði lækkuð. Hún segir að slakt gengi krónunnar hjálpi ekki til.
Forstjóri Landspítalans lagði á það áherslu, í kvöldfréttum Sjónvarps í gær, að ekki verði dregið úr þjónustu við sjúklinga og að öryggi þeirra verði tryggt þrátt fyrir niðurskurð. |
