| Lyfjabirgðir tryggðar fram yfir áramót |
| Föstudagur, 10. Október 2008 10:23 |
|
Heilsugæslan í viðbragðsstöðu Á þriðjudagsmorgun sendi Guðlaugur Þór út tilkynningu til allra heilbrigðisstofnana í landinu þar sem hann lagði áherslu á að gegn þeim erfiðleikum sem nú riðu yfir landið þyrfti sérstakan viðbúnað.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins brást mjög skjótt við þessu og sendi frá sér verklagsreglur til allra heilsugæslustöðva. Þær fela meðal annars í sér að öllum sem hafa samband við móttöku þeirra, í gegnum síma eða með komu, verði gefinn kostur á að tala við hjúkrunarfræðing. Þá munu bæði hjúkrunarfræðingar og læknar verða tilbúnir að hliðra til og mæta auknu álagi. www.mbl.is 10.09.2008 |
