| Lyfjafyrirtæki þegar hætt að skrá ný lyf |
| Þriðjudagur, 18. Maí 2010 00:00 |
|
Fram kom í máli framkvæmdastjóra hjá lyfjarisanum Roche í Fréttablaðinu í gær að fyrirtækið íhugaði alvarlega að hætta að setja ný lyf á markað á Íslandi, og jafnvel að afskrá eldri lyf. „Heilbrigðisyfirvöld mega ekki gleyma því að það er þegar búið að ganga afar langt í að lækka lyfjakostnað. Að lækka enn meira er eins og að pissa í skóinn sinn. Kostnaðurinn getur lækkað lítillega tímabundið, en á endanum þýðir það aukinn kostnað í heilbrigðiskerfinu þegar sjúklingar hafa ekki lengur aðgang að bestu fáanlegum lyfjum," segir Jakob. Hann mótmælir þeirri fullyrðingu Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra í Fréttablaðinu í gær að krafa íslenskra stjórnvalda sé aðeins að fá að kaupa lyf á sambærilegu verði og á hinum Norðurlöndunum. Jakob segir lyfjaverð hér á landi, og þá sér í lagi heildsöluverð frumlyfja, hafa verið á sama róli og meðalverð á hinum Norðurlöndunum síðan árið 2006. Það eigi Álfheiður að vita. Krafan virðist vera sú að fá lyfin á lægra verði en nágrannalöndin, sem gangi augljóslega ekki upp. Í verðsamanburði Lyfjagreiðslunefndar frá því í febrúar síðastliðnum er tekið saman smásöluverð fjörutíu lyfja hér og á hinum Norðurlöndunum. Lyfin eru yfirleitt um eða undir meðalverði hinna Norðurlandanna samkvæmt samanburðinum. Meðalverð á lyfjategundunum 40 var 23.310 krónur hér á landi, en meðalverðið á hinum Norðurlöndunum var 24.941 króna. Verðið var því að meðaltali 6,5 prósentum lægra hér á landi. Jakob segir augljóst að ekki gangi að bjóða upp á lægra verð á Íslandi en í öðrum Evrópuríkjum. Það komi ekki til af því að það muni draga úr hagnaði lyfjaframleiðenda að selja lyfin á lægra verði á 300 þúsund manna markaði en í stórum Evrópuríkjum. Ástæðan sé sú að Ísland sé ekki eyland í þessum skilningi. Lyfjamarkaðurinn sé alþjóðlegur og fjármagna þurfi kostnaðarsamar rannsóknir. Verð í einu landi hafi sannarlega áhrif í öðrum löndum og engin rök séu fyrir því að verð hér eigi að vera lægra.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
