facebook

Lyfjamál: Aukið samstarf við Svía
Miðvikudagur, 04. Júní 2008 11:10
Multithumb found errors on this page:

There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/images/stories/gudlaugur_og_goran.jpg

gudlaugur_og_goran.jpgGuðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, og sænskur starfsbróðir hans, Göran Hägglund, undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um aukið samstarf landanna í lyfjamálum á fundi norrænna heilbrigðisráðherra á Gotlandi.

Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að ráðherra hafi lagt áherslu á það á fundinum að efla norrænt samstarf í lyfjamálum. Gerði hann á fundinum grein fyrir tilraunaverkefni og samstarfi Íslendinga og Svía á lyfjasviði og var m.a. rætt um rafræna afgreiðslu lyfseðla.

Í viljayfirlýsingunni er sérstaklega lögð áhersla á aukið samstarf í verðmyndun lyfja og endurgreiðslum vegna lyfjanotkunar.

www.ruv.is 04.06.2008

 

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066