| Lyfjamarkaðurinn mun opnast |
| Fimmtudagur, 18. September 2008 12:52 |
|
Guðlaugur Þór segir að innan EES hafi menn tekið mark á gagnrýni hans hvað varðar hömlur á lyfjamarkaði innan svæðisins sem kemur sér ákaflega illa fyrir lítil markaðssvæði á borð við Ísland. Skýrði ráðherrann frá því að í Brussel sé ferlið til að breyta regluverkinu hafið. Heilbrigðisráðherra segist vera búinn að koma á tilraunaverkefni um sameiginlegan lyfjamarkað á Norðurlöndum og er þegar hafið samstarf við Svía sem er farið að skila umtalsverðum fjölda lyfja inn á íslenskan lyfjamarkað.
„Markmiðið er að koma á samnorrænum markaði," sagði ráðherra á hádegisverðarfundi í Valhöll í Reykjavík fyrir skömmu. |
