| Lýsa furðu á vanþekkingu yfirmanna á LSH |
| Miðvikudagur, 30. Apríl 2008 11:42 |
|
Í yfirlýsingunni lýsa þeir furðu á þeirri vanþekkingu sem það sýni að yfirmenn telja það raunhæfan möguleika að senda hóp hjúkrunarfræðinga til „skyndiþjálfunar” í umræddum störfum. Stuðningsyfirlýsingin fer í heild sinni hér á eftir: „Við viljum koma á framfæri stuðningi við starfsfélaga okkar á LSH við erfiðar aðstæður. Við undrumst vanþekkingu stjórnenda LSH og yfirvalda á þeim sérhæfðu störfum sem þessar stéttir sinna . Það kemur berlega í ljós þegar yfirmenn telja það raunhæfan möguleika að senda hóp hjúkrunarfræðinga til útlanda til “ skyndiþjálfunar” í umræddum störfum. Skurð- og svæfingahjúkrun er 1½ árs sérfræðinám til viðbótar við 4 ára háskólanám í hjúkrunarfræðum. Auk þess hafa margir þeirra hjúkrunarfræðinga sem nú hafa sagt upp störfum, áratuga starfsreynslu og þekkingu á sínu sviði. Finnst okkur mannauðnum kastað á glæ og skammsýni yfirvalda skelfileg. Aðferð við boðaðar breytingar brýtur í bága við viðurkenndar aðferðir í breytingastjórnun. Þar er m.a. lögð áhersla á góðan undirbúning og samvinnu við þá er breytinguna varðar.
Öryggi sjúklinga er nú ógnað og hættuástand hefur skapast og vísum við allri ábyrgð á hendur stjórnenda LSH og heilbrigðisráðherra." |
