facebook

Málþing um öryggi sjúklinga 8. febrúar næstkomandi
Fimmtudagur, 18. Janúar 2007 00:00
b_180_180_16777215_0___images_stories_frettir_landlaeknir.jpgMálþing um öryggi í sjúklinga verður haldið á vegum Landlæknisembættisins 8. febrúar 2007, kl. 8.30 – 11.30 á Hótel Nordica.

Aðalfyrirlesari verður Sir Liam Donaldson, landlæknir Breta og framkvæmdastjóri verkefnis á vegum Alþjóða-heilbrigðismálastofnunarinnar er snýr að öryggi sjúklinga.
 Sir Liam er mjög þekktur fyrir störf sín á þessu sviði og hefur hlotið aðalsnafnbót vegna þeirra. Hann er áhrifamikill fyrirlesari og er Landlæknisembættinu mikill heiður að því að fá hann til landsins.

 

 b_180_180_16777215_0___images_stories__frettir_skurdstofa_18jan07.jpg

 

Málþingið er ætlað heilbrigðisstarfsfólki og þeim sem áhuga hafa á öryggi í heilbrigðisþjónustu. Athygli er vakin á því að málþingið fer fram á ensku.

Vegna skipulagningar er mikilvægt að skrá sig til þátttöku í málþinginu. Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 7. febrúar næstkomandi.
Ekkert þátttökugjald.

Landlæknir

 

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066