| Martröðinni lokið |
| Mánudagur, 09. Nóvember 2009 17:19 |
|
Rakel Erna er lífsglöð og jákvæð kona en svo var ekki alltaf. Hún býr yfir lífsreynslu sem hún er tilbúin að deila með öðrum í von um að það verði einhverjum að gagni. Fólk sem henni þykir vænt um hefur nokkrum sinnum orðið sterkir örlagavaldar í lífi hennar en mesti styrkurinn býr í henni sjálfri. Enda geislar lífsorkan af henni. „Ég gekk á milli lækna og fór í ótal rannsóknir en ekkert kom út úr þeim fyrr en læknir í Keflavík sendi mig til hjartalæknis sem setti mig í hjartaþræðingu. Ég var búin að fara í þolpróf, blóðprufur, hjartaómskoðun og fleira og allt kom út eins og í heilbrigðri manneskju, en ég hef ekki hugmynd um af hverju. Ég fékk aldrei nein svör við því hvort það væri eðlilegt. Í ljós kom að þrjár æðar voru kolstíflaðar svo uppskurður var óhjákvæmilegur,“ segir Rakel.
Nánar í Vikunni |
