| Matthías skipaður landlæknir tímabundið |
| Miðvikudagur, 05. Nóvember 2008 09:55 |
|
Matthías hefur áður gegnt starfi landlæknis um eins árs skeið, 2006-2007, þegar hann leysti Sigurð af meðan hann var í leyfi frá störfum í Malaví. Kristján Oddson, yfirlæknir hjá embættinu, mun gegna starfi aðstoðarlandlæknis tímabundið, en hann gegndi því starfi á meðan Sigurður var í Malaví. Þessi skipan verður á höfð meðan embætti landlæknis og aðstoðarlandlæknis hafa ekki verið auglýst.
Sigurður tók við sem landlæknir 1. desember 1998 af Ólafi Ólafssyni og var fjórtándi læknirinn sem gegnir stöðu landlæknis frá upphafi, en embættið var stofnað árið 1760. |
