| Með hjarta við hestaheilsu |
| Sunnudagur, 23. Janúar 2011 11:21 |
|
Þau ráðleggja öllum yfir fertugu að koma í áhættumat og öllum 35 ára og eldri ef það er ættarsaga hjartasjúkdóma. „Það koma hingað að meðaltali um þrettán manns á dag yfir árið. Sumir koma einu sinni á ári, aðrir á nokkurra ára fresti. Oftast er fólk að koma í fyrstu heimsókn á milli fertugs og fimmtugs, en við fáum hingað fólk frá átján ára og upp úr. Það eru alltaf einhverjir sem við greinum á staðnum með kransæðasjúkdóma og eru sendir beint upp á spítala. Þeir sem koma illa út úr áhættumatinu fara næst í áreynslupróf þar sem sést hvort hjartavöðvinn verður fyrir súrefnisskorti við áreynslu,“ sagði Bylgja mér áður en hún sendi mig yfir til Sigríðar P. Ragnarsdóttur. Hæð, þyngd og hjartalínurit „Hér má sjá að heildarkólesteról hjá þér er 5,27 en það er æskilegt að það sé undir 5,“ sagði Karl og bætti svo við að það væri allt í lagi því góða kólesterólið hjá mér væri mjög hátt sem þýddi að ég væri með góða fitusamsetningu. Góða og vonda kólesterólið
|
