| Mígreni tengt hjartasjúkdómum |
| Fimmtudagur, 11. Nóvember 2010 17:23 |
|
Helstu niðurstöður verkefnisins eru þær að fólk á miðjum aldri sem þjáist af mígreni höfuðverkjum ásamt áru deyr frekar vegna hjarta- og æðasjúkdóma en þeir sem ekki þjást af slíkum höfuðverk. Einstaklingar með mígreni án áru eru hins vegar ekki í aukinni hættu. Ára lýsir sér sem sjóntruflanir, svimi eða dofi fyrir mígrenikast. „Það eru ýmsar kenningar til og sumir hallast að því að skýringuna sé að finna í æðaveggjunum. Fyrri rannsóknir benda til þess að samband sé á milli mígrenis og heilablóðfalls en hingað til hefur það verið meira á reiki hvort það hafi áhrif á hjartað. Okkar niðurstöður benda til þess að það sé samband á milli mígrenis með áru og bæði heilablóðfalls og kransæðastíflu. Mígrenið virðist því ekki bara tengt við höfuðið heldur er allt æðakerfið undir," segir Lárus. „Það þyrfti hins vegar að rannsaka það frekar hvort ákveðin íhlutun dragi úr líkum á því að fólk sem er með mígreni með áru deyi úr hjarta- og æðasjúkdómum. Það sem við þó vitum er að það er hægt að hafa áhrif á tíðni mígrenikasta með bæði lyfjagjöf og lifnaðarháttum." |
