| Mikil stækkun fyrirhuguð |
| Mánudagur, 04. Janúar 2010 17:48 |
|
„Verksmiðjan hér á landi er alveg fullnýtt,“ segir Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, aðstoðarforstjóri Actavis Group. Hún telur góðar líkur á að af áðurnefndri stækkun verði og að henni ljúki á þessu ári. Endanleg ákvörðun verði að líkindum tekin innan nokkurra vikna. Hjá Actavis á Íslandi starfa um 580 manns, en samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækisins er tæplega 11 þúsund í 40 löndum. Stærsti hluti starfsmanna fyrirtækisins hér á landi fæst við þróun samheitalyfja, en um 160 manns starfa í verksmiðjunni, sem er í Hafnarfirði. Gera má ráð fyrir að starfsmönnum hér á landi fjölgi eitthvað með fyrirhugaðri stækkun verksmiðjunnar. Að sögn Guðbjargar Eddu verður fjölgun starfsmanna þó ekki í beinu hlutfalli við stækkunina, enda felist sú hagræðing sem náist fram með stækkun verksmiðjunnar meðal annars í því að hægt verði að auka framleiðsluna án þess að fjölga starfsmönnum mikið. Actavis rekur sextán verksmiðjur víðsvegar um heiminn. Guðbjörg Edda segir að í dag sé hagkvæmast að stækka verksmiðjuna hér á landi. Íslenska verksmiðjan hafi leyfi til að framleiða flest nýrra lyfja Actavis, m.a. sökum þess að þróunarsetur fyrirtækisins er hér og því sé hægt að auka framleiðslu hraðar en í erlendu verksmiðjunum.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
