| Mikil yfirvinna óholl hjartanu |
| Miðvikudagur, 12. Maí 2010 00:00 |
|
Þeim var gert að gera grein frá öllu því sem gæti haft slæm áhrif á hjartað, s.s. reykingar. Eftir að hafa tekið þetta með í reikninginn komust læknar að þeirri niðurstöðu að þeir sem skila af sér þremur til fjórum yfirvinnustundum á dag eigi í 60% meiri hættu en aðrir að hljóta hjartasjúkdóm, að því er segir á vef breska útvarpsins. Sérfróðir segja að niðurstöðurnar sýni fram á mikilvægi þess að vinna jafnvægi á milli vinnunnar og einkalífsins. Tilgreind eru 369 tilfelli í rannsókninni um einstaklinga sem létust af völdum hjartasjúkdóms, t.d. fengu hjartaáfall eða þjáðust af hjartakveisu. Vísindamenn segja að í mörgum tilfellum séu tengsl þarna á milli og fjölda yfirvinnustunda sem viðkomandi vann. |
