| Miklu færri hjartatilfelli í kjölfar reykbanns |
| Föstudagur, 11. September 2009 06:45 |
|
Í Frakklandi fækkaði bráðainnlögnum vegna hjartatilfella um 15 prósent ári eftir að reykingar voru bannaðar á opinberum stöðum. Árangurinn í kjölfar reykbanns á Ítalíu, sem tók gildi 2005, er svipaður en þar fækkaði bráðahjartatilfellum um 11,2 prósent. Reykbann á Írlandi tók gildi 2004. Þar fækkaði bráðainnlögnum vegna hjartatilfella um 11 prósent næsta árið. Tilfellunum hélt áfram að fækka þarnæsta ár.
Í Skotlandi, þar sem reykbann tók gildi 2006, fækkaði innlögnum vegna hjartatilfella um 17 prósent árið á eftir. |
