| Minnsta hjartadæla heims |
| Þriðjudagur, 18. Ágúst 2009 05:56 |
|
Dælan er gerð úr plasti og títani og er 92 grömm að þyngt. Konan fékk dæluna síðla í júlí og býr nú við tiltölulega eðlilega aðstæður heima hjá sér, að því er fram kemur í tilkynningu frá háskólasjúkrahúsinu í Heidelberg. „Dælan getur komið algjörlega í staðinn fyrir vinstri hvolf hjartans og hún vinnur sérlega hljóðlega og skilvirkt,“ segir yfirmaður hjartaskurðdeildar sjúkrahússins, Matthias Karck.
Með dælunni er ennfremur hægt að brúa bilið frá því að hjartagjafi finnst fyrir hjartaígræðslu. Dælan er fimmta kynslóð af hinni svokölluðu DeBakey Heart, sem var þróuð af bandaríska hjartaskurðlækninum Michael DeBakey á tíunda áratugnum. |
