| Miriam Makeba látin |
| Mánudagur, 10. Nóvember 2008 09:02 |
|
Makeba var á sínum tíma tákn fyrir baráttuna gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku og bjó lengi í útlegð en snéri aftur heim á tíunda áratug síðustu aldar eftir að Nelson Mandela var sleppt úr fangelsi. Makeba fæddist í Jóhannesarborg 4. mars 1932. Móðir hennar var af ættbálki Swasimanna og faðir hennar var af ættbálki Xhosa. Hún vakti alþjóðlega athygli þegar hún söng með flokknum Manhattan Brothers, sem fór í tónleikaferð um Bandaríkin 1959 en hún var svipt suður-afrískum ríkisborgararétti ári síðar. Hún var um tíma gift suður-afríska listamanninum Hugh Masekela, sem einnig var lengi í útlegð. Þekktasta lag Makeba er Pata Pata, sem kom út árið 1967 og lýsir dansi í þorpi. Hún afsalaði sér hins vegar óafvitandi greiðslum fyrir lagið og átti oft í fjárhagserfiðleikum. Hún hafði ekki efni á að kaupa líkkistu þegar einkadóttir hennar, Bondi, lést árið 1985. Hún greftraði hana ein, og bannaði nokkrum blaðamönnum að fjalla um útförina. Makeba var á Ítalíu til að taka þátt í tónleikum til styrktar rithöfundinum Roberto Saviano, sem hefur skrifað um ítölsku mafíuna og fengið líflátshótanir fyrir vikið. Makeba kom hingað til lands í maí 2006 og söng í Laugardalshöll á vegum LIstahátíðar í Reykjavík. |
