| Munntóbaki fylgir aukin hætta af völdum hjartaáfalla og heilablóðfalla |
| Miðvikudagur, 14. Nóvember 2007 16:12 |
|
Fylgst var með 118.000 Svíum um nokkurra ára skeið. Maria-Pia Hergens, sem stjórnaði rannsókninni segir að niðurstöðurnar komi ekki á óvart og að læknar telji að nikótín auki áhrif slíkra áfalla.
Hergens er þó á því að munntóbakið, sem vinsælt er meðal ungmenna á Norðurlöndum, sé skárra en reykingar. „Það er auðvitað betra að nota munntóbak en að reykja, en það þarf að vera á hreinu að munntóbakinu fylgja líka hættur". |
