| Nauðsynlegt að tryggja öryggi |
| Föstudagur, 26. Mars 2010 00:00 |
|
Björn segir að áfram verði lögð áhersla á öryggi sjúklinga á spítalanum og líklega hafi aldrei áður verið lagt jafn mikið í að fylgjast með örygginu á spítalanum. Hann segir að ef grunur leiki á að öryggi sjúklinga sé ógnað og að spítalinn geti ekki brugðist við því „munum við, eins og okkur ber, tilkynna slíkt til landlæknis án tafar, enda er honum ætlað að hafa eftirlit með okkur.“ Björn fjallar um sumarlokanir á spítalanum í pistli sínum. hann bendir á að þrátt fyrir allt verði um 80% af rúmum opin í sumar. Búast megi við önnum en spítalinn sé betur mannaður en áður og þess vegna hafi verið unnt að draga mjög úr yfirvinnu. Föstudagspistill Björns Zoëga |
