| Neyðarástand verði af yfirvinnubanni |
| Laugardagur, 07. Júní 2008 08:49 |
|
Í apríl sl. voru 1.045 hjúkrunarfræðingar í almennum störfum hjá LSH, þ.e. ekki í stjórnunarstörfum, og af þeim var einungis tæpur fimmtungur skráður með 100% starfshlutfall. Langflestir, eða rúm 40%, eru með minna en 80% starfshlutfall. Nánast allir hjúkrunarfræðingar taka þó nokkurn fjölda aukavakta í hverjum mánuði þannig að ljóst er að þeir vinna mun meir en kveður á um í ráðningarsamningi þeirra. Í fyrra var farið í gegnum starfshlutföll starfsmanna, m.a. hjúkrunarfræðinga, og kom þá í ljós að nokkrir voru skráðir með afar lágt starfshlutfall, eða undir 50%, en voru komnir í yfir 100% vinnu með aukavöktum. Skv. heimildum blaðsins voru þessir einstaklingar með yfir hálfa milljón í laun. Að sögn Guðrúnar Bjargar Sigurbjörnsdóttur, aðstoðarhjúkrunarforstjóra LSH, var talað við þessa einstaklinga, sem greinilega gátu verið skráðir með hærra starfshlutfall en raun bar vitni, og á þetta ekki að vera til staðar í dag. Guðrún Björg segir sumarið vera erfitt tímabil þar sem margir séu í fríi. Meiri yfirvinna sé því unnin á sumrin. Hún telur að manna þurfi 50-60 aukavaktir á hverjum sólahring en Álfheiður segir töluna vel geta farið í 100 yfir sumartímann. Á næstunni munu meðlimir FÍH kjósa um yfirvinnubannið. Úrslitin verða að öllum líkindum tilkynnt eftir rúmar tvær vikur. Styðji félagsmennirnir bannið mun það taka gildi 10. júlí nema það takist að semja.
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
