facebook

Neysla mjólkurvara lengir lífið
Þriðjudagur, 28. Júlí 2009 09:33

mjolk.jpgBörn sem neyta mikið af mjólkurvörum geta vænst þess að lifa lengur en ella, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar.

Þessar niðurstöður eru birtar í vísindaritinu Heart. Um 4.400 bresk börn sem tóku þátt í rannsókn á fjórða áratug síðustu aldar voru leituð uppi, og í ljós kom að þeim sem borðað höfðu mikið af kalsíum og mjólkurvörum hafði síður verið hætt við heilablóðfalli og öðrum kvillum sem geta verið banvænir.

Í frétt breska ríkisútvarpsins um niðurstöðurnar segir að þrátt fyrir að mjólkurvörur séu ríkar af fitu og kólesteróli hafi mikil neysla á þeim ekki aukið hættuna á hjartasjúkdómum.

Rannsóknin var gerð af vísindamönnum við Háskólann í Bristol og Rannsóknastofnunn í læknisfræði í Queensland í Ástralíu.

 


Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066