| Niðurskurður - öryggi sjúklinga |
| Mánudagur, 15. Nóvember 2010 10:36 |
|
Nú bregður svo við að ríkisvaldið er blóðugum niðurskurði í heilbrigðiskerfinu um allt land og sitt sýnist hverjum. Það sló mig hinsvegar hressilega þegar ég las viðtal við Björn Zoega Forstjóra LSH þar sem hann opnaði á þann möguleika að hjartaaðgerðir yrðu lagðar niður á Íslandi og færðar til útlanda. Ég verð nú að játa að ég trúi því ekki að þetta verði reyndin þar sem hugmyndin er svo algjörlega galinn og út í hött. Ég get ekki séð annað en að þetta myndi kosta mikla peninga og mikið óhagræði að senda fólk í hjartaaðgerðir erlendis og ljóst að mannslífum yrði fórnað þ.e. það er ekki fulljóst að allir kæmust á áfangastað til aðgerðar. Ég fæ ekki betur séð en ríkisvaldið hafi litla stjórn á þeim niðurskurðarhníf sem beitt er á heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Mér virðist skilningur þeirra stjórnmálamanna sem sinna málaflokknum á eðli heilbrigðisþjónustu lítill sem engin og skilningur þeirra á aðstæðum þeirra sem þarfast þjónustunnar enn minni. Það er von mín að ráðamenn þjóðarinnar taki sönsum varðandi þennan óheyrilega niðurskurð og skili nýjum tillögum sem verði betur ígrundaðar og með hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi. Það eru þeir sem allt snýst um eftir allt saman. Stöndum vörð um öryggi sjúklinga og miðum þjónustuna við þeirra þarfir. Árósum 15.11.2010 Björn Ófeigsson |
