facebook

Níu leiðir að heilbrigðara hjarta
Fimmtudagur, 22. Febrúar 2007 00:00

jafnvaegi.jpgHjartað er án efa mikilvægasta líffærið sem mannskepnan hefur að geyma og því er mikilvægt að hugsa vel um það.

 Á heilsuvefnum health.com var birtur listi yfir níu hluti sem hjálpa þér að halda hjartanu í góðu ástandi. Hann birtist hér í lauslegri þýðingu.

I. Mjólkurglas á dag kemur hjartanu í lag.

Í nýrri amerískri rannsókn, sem framkvæmd var af þarlendri stofnun, er komist að þeirri niðurstöðu að af þeim sem neyta mikillar mettaðrar fitu þá voru þeir sem neyttu mjólkurvara að minnsta kosti þrisvar sinnum á dag með mun lægri blóðþrýsting en þeir sem voru síðri í mjólkurneyslunni.
Hár blóð þrýstingur getur valdið skemmdum á æðakerfi líkamans sem á móti eykur hættuna á hjartaáföllum. Það er því kjörið að drekka 3 glös af léttmjólk á dag.

II. Reyndu að hreyfa þig
Það eru til margar gerðir af líkamsrækt og öll heilsurækt er góð fyrir hjartað. Þrjátíu mínútna tai chi-tími getur einnig stuðlað að lækkun blóðþrýstings. Í einni rannsókn kom fram að þátttakendur í 12 vikna tai chi-námskeiði náðu að lækka blóð þrýsting sinn um allt að 16 stig. Tai chi byggir á hægum og slakandi hreyfing um og er gríðarlega vinsæl heilsurækt víða um heim.

III. Farðu að veiða
Fiskur er ekki bara góður fyrir heilann heldur er hann líka góður fyrir hjartað. Hár hvíldar púls getur gefið til kynna aukna hættu á hjartakvillum. Fiskát getur stuðlað að lægri hvíldar púlsi og því minnkað hættuna á hjarta áföll um. Í nýrri rannsókn við Harvard háskóla kom það í ljós að fólk sem át fisk fimm sinn um eða oftar í mánuði var að jafnaði með 3,2 færri slög á mínútu heldur en þeir sem átu fisk bara einu sinni í viku. Vísindamennirnir í Harvard vilja eigna Omega-3 fitusýrunum í fiskinum þetta þannig að nú er bara um að gera að skófla í sig fiski. Svo er líka mjög gaman og af slappandi að veiða undir réttum kringum stæðum.

IV. Fáðu þér ávexti
Allir vita að ávextir eru hollir. Rannsóknir hafa sýnt fram á að safi úr granateplum getur komið  veg fyrir hörðnun á kransæðunum og í sumum tilfellum jafnvel snúið við því ferli sem þegar er hafið. Í nýlegri amerískri rannsókn kemur fram að þessi sami safi getur minnkað uppsöfnun kólesteróls í músum um 30 prósent. Einnig sýndu hjarta frumur, sem fengu vænan slurk af safanum, 50 prósent aukningu á nítrus oxíði (nitric oxide) sem er efni sem berst gegn kölkun æða.

V. Ekki spara sojasósuna
Smá soja sósa á hverjum degi getur gert góða hluti fyrir heilsuna. Sojasósa er sneisa full af andoxunarefnum og inniheldur 10 sinnum meira af þeim en vín gerir. Í rannsókn sem gerð var við háskólann í Singapúr þótti sannað að sojasósa geti dregið verulega úr fylgi kvillum reykinga, offitu og sykursýki. Þó er rétt að vara við því að margar sojasósur hafa hátt salthlutfall sem er óhollt í óhófi og því er rétt að velja sér sojasósu sem hefur minna saltmagn.

VI. Hláturinn lengir lífið
Þetta er ekki bara klisja heldur heilagur sannleikur. Í rannsókn sem gerð var við háskólann í Baltimore var þátttakendum skipt í tvo hópa. Annar hópurinn var látinn horfa á gamanmyndina There´s something about Mary á meðan hinn hópurinn horfði á stríðsmyndina Saving  Private Ryan. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að þeir sem horfðu á gamanmyndina voru með mun betra og heilbrigðara blóðflæði eftir á heldur en hinn hópurinn. Því er mælt með því að fólk hlæi í að minnsta kosti 15 mínút ur á degi hverjum.

VII. Sofðu vel og lengi
Konur sem sofa minna en fimm klukkustundir á hverri nóttu er 30 prósentum líklegri til þess að fá einhverja hjartakvilla en þær sem sofa átta klukkustundir. Þetta kemur fram í rannsókn sem framkvæmd var við kvennaspítala í Boston. Of lítill svefn getur raskað hormónum líkamans ásamt því að fara illa með blóðsykurinn og blóðþrýstinginn.

VIII. Andaðu djúpt
Fólk getur lækkað blóðþrýsting sinn með því einu að anda. Í stað þess að anda 16 til 19 sinn um á hverri mínútu, eins og fólk gerir almennt, er ráðlegt að í 15 mínútur á degi hverjum dragi fólk andann 10 sinnum á mínútu. Rannsóknir sýna að hröð og grunn öndun tefur fyrir því að líkaminn losi sig við salt úr líkamanum. Salt er einn af þeim þátt um sem hækka blóðþrýst ing inn.

IX. Slepptu þungarokkinu

Hópur við Oxford háskóla hefur komist að því að hæg hugleiðslutónlist með réttum takti getur leitt til jákvæðrar minnkunar á hjartslætti fólks. Tónlist með hraðari takti á borð við þungarokk hraðar hins vegar á önduninni og blóðrásinni. Því væri kjörið að hlusta á seiðandi djass sér til heilsubótar.

Greinin birtist í blaðinu

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066