| Nokkur góð ráð við stressi |
| Sunnudagur, 01. Ágúst 2010 00:00 |
|
Þegar við erum mjög áhyggjufull þá aukast streituhormón í líkamanum og vekja upp ofnæmiskerfið, hafa áhrif á heilastarfsemina og geta verið heilsuspillandi. Nokkur góð ráð við stressi 1. Ekki reyna að stjórna öllu: Áhyggjur eru oft afleiðing þess að maður reynir að hafa stjórn á öllu og jafnvel öllum í kringum sig. Reyndu að sjá hverju þú getur stjórnað og hverju þú getur ekki stjórnað. Yfirleitt getum við til dæmis ekki stjórnað því hvernig aðrar manneskjur haga lífi sínu og því fyrr sem við áttum okkur á því - því fyrr hverfa áhyggjurnar. 2. Segðu góða hluti um sjálfa þig: Þetta ráð virkar mjög einfalt og er það, en í raun þá nýta fæst okkar þessa leið. Flest okkar gera nefnilega einmitt hið gagnstæða. Við brjótum okkur sífellt niður og teljum okkur ekki vera nógu góð. Það eykur á áhyggjurnar og stressið fer upp úr öllu valdi. Næst þegar þú stendur þig að verki við að rífa sjálfa þig niður hugsaðu þá eitthvað fallegt eða skrifaðu lítinn lista um það sem þú gerir vel. Við erum flest með óraunhæfar kröfur til okkar sjálfra og stöndum fæst undir þeim. 3. Örvaðu slökunarviðbrögðin: Prófaðu að stunda hreyfingu sem felur í sér mikinn hávaða. Það gæti verið dans eða eróbikk þar sem þú hamast í hávaða og látum og á sama tíma ýtir þú frá þér öllum heimsins áhyggjum. Þannig getur þú róað hugann jafnvel þó ekki sé í nema smá stund. Þó eru ekki allir fyrir svona háværar íþróttir, en þá er hægt að grípa í prjónana, hugleiða, hlaupa eða grípa í hljóðfæri. 4. Hollur matur og góður svefn: Borðaðu meira af grænmeti, ávöxtum og grófu korni. Forðastu sykur, koffín og feitan mat eins og þú getur. Góður og næringaríkur matur er gott eldsneyti fyrir líkamann og heldur streitunni niðri. Forðastu að borða þegar þú ert ekki svangur - það getur aukið stressið. Stress getur líka valdið svefnleysi sem gerir þig enn áhyggjufyllri. Reyndu að ná ró á kvöldin. Forðastu mikil læti, kaffi og mat rétt fyrir háttatíma. Reyndu að fara snemma í rúmið og fá nægan svefn. Mælt er með að minnsta kosti 6-7 tímum. 5. Finndu þér ástríðu: Mikið stress getur gert mann þröngsýnan. Í stað þess að loka sig af er vænlegra til árangurs að takast á við áskoranir. Byrjaðu smátt - skráðu þig á kvöldnámskeið í einhverju sem þig hefur langað til að prófa eða taktu að þér sjálfboðastarf hjá Rauða krossinum eða öðrum hjálparsamtökum. Margar konur finna áhyggjurnar hverfa þegar þær finna sér nýtt áhugamál, nýjan feril eða finna einhverja ástríðu í lífinu. 6. Gefðu þér nokkrar mínútur: Finnst þér sem þú hafir ekki tíma til að losna við stressið? Gefðu þér allavega nokkrar mínútur - þú hlýtur að hafa tíma til þess! Dragðu djúpt andann og hugsaðu um eitthvað fallegt eða farðu í göngutúr. Það losar um stress að ganga eða hreyfa sig og nokkurra mínútna hreyfing ætti að vera eitthvað sem allir ráða við. Ef þú hefur nokkrar mínútur í viðbót þá er líka tilvalið að skella sér í sundlaugar borgarinnar. Ekkert vinnur betur gegn stressi en góður sundsprettur og heiti potturinn í kjölfarið. Viktoría Hermannsdóttir (
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
) |
