facebook

Ný bráðamóttaka í apríl
Mánudagur, 01. Mars 2010 00:00
bradamottaka_1Verið er að sameina tvær aðalbráðamóttökur Landspítalans í eina í Fossvoginum. Framkvæmdir setja sinn svip á starfsemina með ryki og borhljóðum en starfsmenn reyna að láta atganginn ekki hafa áhrif á móttöku sjúklinga.

Áform eru um að nýr Landspítali rísi við Hringbraut í Reykjavík eftir sex ár. Engu að síður er í smíðum ný og sameinuð bráðamóttaka í Fossvoginum. Framkvæmdin kostar 184 milljónir króna.

Gert er ráð fyrir að nýja bráðamóttakan verði tilbúin um miðjan apríl.  Á efri hæð nýju bráðamóttökunnar verður endurkomu- og göngudeild fyrir minna veika og minna slasaða sjúklinga.

 

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


www.ruv.is 01.03.2010  

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066