| Ný lifur bjargaði barninu þeirra |
| Laugardagur, 14. Júlí 2007 10:34 |
|
Runólfur Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga, segir þörf fyrir líffæragjöf að aukast. Hann tekur sem dæmi að margir þeirra sem nú bíði eftir nýra hafi áður þegið nýra. Ígrædd líffæri hafi yfirleitt ekki langa endingu. Ekki séu alltaf ættingjar til staðar sem geti gefið líffæri. Aukin þörf sé því á gjöfum úr látnum. Hingað til hafa Íslendingar verið tregir til að samþykkja líffæragjöf úr látnum ættingjum. Hér á landi er gert ráð fyrir ætlaðri neitun fólks um líffæragjöf, undirritun líffæragjafakorta hefur ekkert lagalegt gildi. Runólfur segir aukna umræðu og endurskoðun laga nauðsynlega. Fréttablaðið 14.07.2007 |
