facebook

Ný rannsókn spáir faraldri gáttatifs
Föstudagur, 27. Maí 2011 09:03
Dav_O_ArnarAlgengi hjartasjúkdómsins gáttatifs hefur aukist um fimmtung síðasta áratuginn samkvæmt nýrri rannsókn íslenskra vísindamanna frá Landspítala og Hjartavernd.

Davíð O. Arnar, hjartalæknir á Landspítala og Hrafnhildur Stefánsdóttir læknir, í samvinnu við Thor Aspelund og Vilmund Guðnason vísindamenn hjá Hjartavernd, unnu að rannsókninni. 

Búast má við að gáttatif verði enn meira áberandi sjúkdómur á þessari öld. Hann er meðal fjölmargra vandamála sem í reynd fylgja auknum lífsgæðum og hækkandi lífaldri.

Ekki nóg með það heldur leiðir rannsóknin líkur að því að fjöldi Íslendinga með gáttatif gæti þrefaldast á næstu árum. Þessi fjölgun skýrist að stærstum hluta af fjölgun aldraðra, en einnig af samspili við áhættuþætti eins og offitu og sykursýki tvö. Þessi spá er sú fyrsta sinnar tegundar í Evrópu og hefur vakið athygli enda bendir hún til þess að sjúkdómurinn geti orðið að faraldri á Vesturlöndum.

www.mbl.is 27.05.2011

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066