| Nýr útvefur Landspítala opinn almenningi |
| Þriðjudagur, 23. Júní 2009 15:46 |
|
Undanfarið ár hefur verið unnið að gerð þessa nýja útvefs. Þótt opnun hans nú skipti miklu fyrir almenning og Landspítala er hún þó aðeins skref á langri braut. Þróun á vefnum er stöðugt viðfangsefni en markmiðið er skýrt, þ.e. að stuðla að sem greiðastri upplýsingamiðlun í öllu starfi sem tengist spítalanum. Í því sambandi verður lögð áhersla á það að almenningur geti nýtt rafrænar leiðir í samskiptum við Landspítala í auknum mæli og sem allra mest. Fjölmargt nýtt og breytt ber fyrir augu þeirra sem skoða nýja Landspítalavefinn og margt á eftir að bætast þar við næstu misseri. Meðal annars má benda á safnsíðuna "Sjúklingar/Aðstandendur" þar sem er safnað saman á einn stað því helsta sem fólk þarf að vita varðandi leiðina á sjúkrahúsið, dvölina þar og útskriftina. Aukið verður við þann lista eftir þörfum. Nýtt og þægilegra viðmót er á vefsíðum með gjaldskrá, lausum störf og skipuriti, svo eitthvað sé nefnt. Starfsfólk Landspítala vill að notendur vefsins hafi sem mest áhrif á þróun hans. Því eru ábendingar vel þegnar. Til þess nægir að smella á myndina á forsíðu þar sem stendur "Mótum saman nýjan Landspítalavef", fylla út formið þar og senda.
Nýr upplýsingavefur Landspítala er unninn í samstarfi við hugbúnaðarfyrirtækið Eskil og settur upp í vefumsjónarkerfinu Lísu. |
