| Samkeppni um háskólasjúkrahús |
| Mánudagur, 15. Mars 2010 11:18 |
|
Ríkiskaup afhentu í dag keppendum í samkeppni um frumhönnun um nýjan Landsspítala keppnisgögn en undanfarna mánuði hefur verið unnið að keppnislýsingu í kjölfar viljayfirlýsingar við lífeyrissjóði um fjármögnun framkvæmdarinnar. Fimm hönnunarteymi, sem valin voru eftir forval í febrúar sl. hefjast nú handa og þurfa að skila niðurstöðum þann 10. júní nk. Í teymunum fimm eru íslenskir sérfræðingar á byggingarsviði og flestar stærstu arkitekta- og verkfræðistofur landsins munu taka þátt í þessari samkeppni um frumhönnun nýs Landspítala við Hringbraut. Níu manna dómnefnd skipuð Niðurstaða dómnefndar verður kynnt 9. júlí nk. og gert er ráð fyrir að það hönnunarteymi sem verði hlutskarpast hefji strax formlega vinnu við frumhönnunina. Þá er einnig gert ráð fyrir að það teymi sem verður hlutskarpast í samkeppninni starfi að lokinni frumhönnun við verkefnisstjórn og hönnunarrýni með verkkaupa, íslenska ríkinu. Meginforsendur hönnunarsamkeppninnar Bráðakjarna með bráðamóttöku, myndgreiningu, gjörgæslu, skurðstofum og rannsóknarstofum. Við mat á innsendum lausnum verður m.a. litið til arkitektúrs, ytra- og innra skipulags, áfangaskiptingar, sveigjanleika, tækni og tæknikerfa, umhverfissjónarmiða, byggingarkostnaðar, rekstrarkostnaðar bygginga og heildarhagkvæmni starfseminnar. Er ráðgert að sá þáttur vegi 85% af heildareinkunn en tilboð í hönnunarþóknun vegi 15%. Áætlaður kostnaður við nýbyggingu Landspítalans er um 33 milljarðar króna á verðlagi í mars 2009. Standa vonir til að framkvæmdir við hana geti hafist sumarið 2011 og er áætlað að þær standi fram á árið 2016. |
