| Óbreytt líffæragjafalög |
| Fimmtudagur, 11. September 2008 11:58 |
|
Jórunn Sörensen, formaður Félags nýrnasjúkra, sagði í Síðdegisfréttum í gær að lögunum þyrfti að breyta til samræmis við lög í flestum öðrum Evrópulöndum, þannig að fólk þurfi að biðjast undan því að vera líffæragjafar.
Runólfur Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga Landsspítalans, er sama sinnis. Hann benti á í samtali við fréttastofu, að með slíkum lögum verði þó aldrei gengið gegn vilja ættingja hins látna. Þau myndu fyrst og fremst hvetja almenning til líffæragjafa. Runólfur bendir á að á Spáni séu í gildi lög um fyrirframgefið samþykki og þar sé mesta framboð líffæra í Evrópu. |
