-Auglýsing-

Öll Þjóðin – eitt hjarta.

Í tilefni 25 ára afmælis Hjartaheilla hafa samtökin nú ákveðið að blása til sóknar og efna til landssöfnunar undir yfirskriftinni Öll þjóðin – eitt hjarta. Merkjasala fer fram þessa dagana og eru landsmenn beðnir að taka vel á móti sölufólki Hjartaheilla.

Dagskrá beinnar útsendingar Stöðvar 2 í opinni dagskrá 

Landssöfnun Hjartaheilla  – ríflega tveggja klukkustunda löng söfnunar- og skemmtidagskrá í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 laugardaginn 28. mars.

Fram koma valinkunnir tónlistarmenn og grínarar þar sem rauði þráðurinn verður ástin, rómantíkin og allt það sem okkur er hjartfólgnast.

Pétur Jóhann, Jón Gnarr, Kjartan Guðjónsson og Brynhildur Guðjónsdóttir leika í nýjum grínatriðum sem samin voru af hópnum og Sigurjóni Kjartanssyni höfundi Fóstbræðra, Svínasúpunnar, Stelpnanna og Ríkisins.

Páll Óskar flytur einkunnarlag söfnunarinnar „Þú komst við hjartað í mér”. Evróvisjónfarinn Jóhanna Guðrún tekur sígilt íslenskt ástarlag, Milljónamæringarnir og Bogomil Font frumflytja nýtt lag, karlakórinn Voces Masculorum tekur lagið, Jói og Gói grínast og Ilmur Kristjánsdóttir ræðir við gesti og gangandi um ástina.

- Auglýsing-

Kynnar verða Heimir Karlsson og Kolbrún Björnsdóttir úr Íslandi í bítið á Bylgjunni, Edda Andrésdóttir ræðir við hjartasjúklinga, aðstandendur þeirra og lækna sem vinna á hjartasjúkdómadeild Landspítalans.

Auddi og Sveppi munu svo standa vaktina í símaverinu og tilkynna nýjustu tölur í söfnuninni – eins og þeim einum er lagið.

Framleiðandi söfnunarútsendingarinnar er Saga Film og allir sem fram koma gefa vinnu sína og leggja  þar með lóð á vogarskálarnar í þessu mikilvæga söfnunarátaki.

Söfnunarnúmerin eru eftirfarandi

903 5000 fyrir 5000,- kr.

903 3000 fyrir 3000,- kr.

903 1000 fyrir 1000,- kr.

 

- Auglýsing -

Söfnunarsími símavers á meðan útsending stendur yfir frjáls framlög er

551 9020

 

Söfnunarreikningur Hjartaheilla er

Banki 1175 – -05 – 762000

Kt. 511083 – 0369

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-