facebook

Örorkumati breytt
Þriðjudagur, 06. Mars 2007 00:00
b_180_180_16777215_0___images_stories_frettir_althingi.jpgÖryrkjar eiga það ekki lengur yfir höfði sér að bætur þeirra falli niður þó þeir hefji þátttöku á vinnumarkaði nái tillögur nefndar forsætisráðherra fram að ganga. Tillögurnar eru unnar með góðu samstarfi stjórnarflokkanna og hagsmunasamtaka. Geir Haarde forsætisráðherra kynnti tillögurnar nú fyrir hádegi. Öryrkjabandalag Íslands, Alþýðusambandið, BSRB, Samtök atvinnulífsins og Landsamband lífeyrissjóða áttu fulltrúa í nefndinni. Lagt er til að núgildandi örorkumat verði fellt niður og í stað þess komi sveigjanlegra mat sem tekur mið af starfsgetu frekar en örorku. Þá geta öryrkjar stundað vinnu án þess að eiga á hættu að missa allar bætur.

Fréttatilkynning Forsætisráðuneytisins

Frétt birtist á vísi.is

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066