| Öryggisvika á LSH |
| Sunnudagur, 18. Febrúar 2007 00:00 |
|
Öryggi sjúklinga fellur undir ábyrgð klínískra framkvæmdastjóra LSH sem hafa fengið aðstoð hjá deild gæðamála og innri endurskoðunar varðandi skipulagningu og framkvæmd. Tilgangur vikunnar er að vekja fólk til umhugsunar um ákveðnar staðreyndir í tengslum við "atvik" og viðbrögð við þeim og að fá umræður um viðhorf og menningu í tengslum við gæði og öryggi þjónustunnar. Í öryggisvikunni verður fræðsluefni varðandi öryggismál sýnt á fimm geisladiskum frá "National Patient Safety Agency" í Bretlandi.
Myndirnar heita:
Þekktir erlendir einstaklingar úr heilbrigðisþjónustu ræða í myndunum á opinskáan hátt um öryggisbrag og öryggi veittrar þjónustu. Myndirnar eru með íslenskum texta. Starfsfólk deildar gæðamála og innri endurskoðunar stýrir umræðum eftir hverja sýningu. Meðfylgjandi tengill vísar á bækling um öryggisvikuna Frétt af vef LSH |

Öryggisvika verður á Landspítala - háskólasjúkrahúsi dagana 19. til 23. febrúar 2007. Framkvæmdastjórn tók ákvörðun um að halda þessa viku í framhaldi af málþingi Landlæknisembættisins um öryggi sjúklinga sem var 8. febrúar.