| Ógnar ekki öryggi sjúklinga |
| Föstudagur, 09. Janúar 2009 14:43 |
|
Ráðherrann hitti starfsfólk St Jósefsspítala á miklum hitafundi í gærkvöldi en hann segir málið mjög tilfinningaþrungið. Hann segir að þrátt fyrirr að aðstæður í þjóðfélaginu hafi breyst til hins verra og fólk sé meðvitað um stöðuna, þá verði fólk mjög gagnrýnið og tilfinningasamt þegar hlutirnir snúi beint að því sjálfu.
Hann segir að starfsfólk St Jósefsspítala fái tækifæri til að sinna störfum sínum áfram annars staðar. Vinnuhópar með fagfólki séu að störfum til að útfæra þessa hluti um allt land. Reynt verði að halda uppi nær óbreyttri þjónustu og útgangspunkturinn sé að ógna ekki öryggi sjúklinga. Þessi leið hafi orðið fyrir valinu meðal annars vegna þess. Hún geri hinsvegar þær kröfur til fólks að það sé samvinnuþýtt. |
