facebook

Óhollt fyrir hjartað að fara snemma á fætur
Fimmtudagur, 06. September 2007 16:13

sofasaman.jpgÞað eru gömul vísdómsorð að morgunstund gefi gull í mund, en ný japönsk rannsókn bendir til að þeim sem fara snemma á fætur sé hættara við hjartakvillum. Leiddi rannsóknin í ljós tengsl á milli fótaferðatíma og hjarta- og æðasjúkdóma.

Rúmlega þrjú þúsund hraustir einstaklingar á aldrinum 23-90 ára tóku þátt í rannsókninni. Þeim sem fóru snemma á fætur var hættara við háþrýstingi og heilablóðfalli.

Í niðurstöðunum er aftur á móti tekið fram, að flestir þeirra sem fóru snemma á fætur hafi verið eldra fólk.

www.mbl.is 06.09.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066